Klukkan

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Brandari vikunnar...

'Eg er orðin 25 !!!!!!!!!!!!!!

Leikur dagsins

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb) - Ársspá 2006 - Svartsýni
- Til baka í samskiptum
- Snertiþörf mikilSatúrnusarfólki, eins og þér, er ráðlagt að leyfa sér ekki að vera svartsýnt í janúar, febrúar, mars og apríl 2006. Þú leitast vissulega við að lifa eftir skoðunum þínum og vilt geta gert allt sem þig langar til, með litlum fyrirvara, án þess að þurfa að eyða tíma þínum í réttlætingar en átt það til að vera svartsýn/n þegar hlutirnir ganga ekki upp eins og þú kýst.Satúrnus á það til að valda börnum sínum þunglyndi, tortryggni og svartsýni og þér er bent á að vísa slíkum tilfinningum alfarið á bug. Sérvitringar eins og þú falla reyndar ekki undir nenar hefðbundnar skilgreiningar og það á vel við stjörnu vatnsberans. En einnig fá hæfileikar þínir svo sannarlega að njóta sín í byrjun sumars þegar þú tekst á við nýtt verkefni. Þú gleymir aldrei því sem þú telur nauðsynlegt í þágu málstaðar eða fyrir almannaheill og það styrkir þig í fyrrnefndu verkefni þar sem kraftur þinn eflist.Veittu þeim hugmyndum sem þú færð á árinu sem í fyrstu virðast léttvægar sérstaka athygli. Þetta á enn frekar við þar sem þú ert að ræða mál er snerta náin kynni. Mundu að sektarkennd, ásakanir og ótti hverfa oft þegar þú skoðar hug þinn af einlægni. Þú leggur áherslu á heiðarleika árið framundan og veitir því til dæmis eftirtekt þegar þig langar að snerta einhvern (átt það til að hætta við á síðustu stundu). Næst hefurðu valkost, þú getur snert, eða sleppt því. Áttaðu þig líka betur á því þegar þú heldur aftur af orðum þínum. Opnaðu þig eru einkunnarorð vatnsberans árið 2006.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní) - Ársspá 2006 - Skemmtilegur
- Dyndóttur
- OrðheppinnHér ertu nánast óútreiknanleg/ur ef marka má tvíburann árið 2006. Alltaf ertu einu skrefi á undan öllum og hjá þér má alltaf búast við því óviðbúna og sannleikurinn er reyndar sá að þú veist ekki og vilt ekki vita hvað þú gerir næst.

Fyrri hluta ársins lifir þú nánast á orðheppni þinni og heillandi framkomu. Þó illt sé í efni finnur þú snjalla og framkvæmanlega lausn á öllu, í hvaða aðstæðum sem er. Börn Merkúríus eiga auðvelt með að ná takmarki sínu og það á við þig árið framundan því Merkúr sýnir þig ævintýragjarna/n og þar af leiðandi fær um að komast þangað sem þú ætlar þér.

Þegar sumarið gengur í garð byrjar þú að viðurkenna raunveruleikann sem við blasir og það hjálpar þér vissulega í átt að fyrrnefndu takmarki. Þú leitast við að lesa á milli línanna og ert mjög klár í því sem þú tekst á við.

Í júníbyrjun árið 2006 hugsar þú fljótar en áður og hugur þinn birtist á fleygiferð. Þú ert sneggri í hugsun en flest önnur merki í dýrahringnum og hefur að kjörorði: hér í dag, farin/n á morgun - svo þú skalt búa þig undir maraþonskokk árið framundan.
Nú er minnst á hraða í ársspánni þinni og að þú náir takmarki þínu meðal annars. Nú kannt þú að velta fyrir þér hvers vegna ársspáin gefur alltaf loforð um hið góða í þínu tilfelli. Hvers vegna Spámaður.is segi alls ekkert um myrkrið?

Svar: Einfaldlega vegna þess að það er ekki til frá mínum bæjardyrum séð. Þú ert að læra og mátt ekki gleyma að trú þín er svakalega máttug. Þú ert ljósið og mikil vitsmunavera. Þú ert að komast að því hver þú ert og hvernig þú varst leidd/ur inn í þennan efnisheim. Trúðu á þig árið 2006 og þá lifna þrár þínar við.

Steingeit (22.des - 19.jan) - Ársspá 2006
- Eflist þegar líða tekur á árið
- Lánsemi áberandi
- Sætir sigrarHér er minnst á Satúrnus og sálufélaga þegar árið framundan er skoðað hjá fólki fætt undir stjörnu steingeitar. Hið síðarnefnda er umræðuefni sem má ræða endalaust. Þegar talað er af sannleika er sú manneskja hinsvegar ekki til sem er ekki sálufélagi þinn. En ef steingeitin þráir maka eða elskhuga árið 2006 þá er ekki gott að hún temji sér áhugaleysi meðan hún bíður eftir að samband komist á eða fólk sem hún kýs að tengjast tilfinningalega verði á vegi hennar. Ef þú sýnir óskum þínum áhugaleysi rætast þær aldrei.

Satúrnus áhrifastjarna þín eflir þig þegar þú lítur í kringum þig árið framundan. Þú hreinsar til á tilfinningasviðinu, skoðar hvar ótti þinn leynist eða höfnunin, afneitunin, gagnrýnin og dómharkan sem beinist jafnvel að þér sjálfri/sjálfum. Þú stígur dansinn í mars og þér líður vel, áhrifastjarna þín, Satúrnus, sér til þess. Heilsa þín og hamingja eflist 2006. Þú ert kannski ekki 100% öruggur með framgang verkefnis í upphafi árs en það rætist úr því.

Þú ert lánsöm/lánsamur og þig hungrar í lífið og sigurinn er sætur í þínum huga. Þar sem þú ert fædd/ur á myrkustu dögum vetrar þarfnast þú sólarljóssins í ríkum mæli og leitar þar af leiðandi uppi félagsskap fólks sem er jákvætt, uppbyggjandi og ástríkt. Þú kemst handan við regnbogann.

Sporðdreki (24.okt-21.nóv) - Ársspá 2006 - Þrautseigur
- Dulrænn
- ÁstríðufulluMars hefur umtalsverð áhrif á stjörnu þína árið framundan á tilfinningasviðinu. Áhrifastjarna þessi sýnir athafnasemi þína með eindæmum öfluga þegar vorar. Þú þarft hinsvegar að læra að þekkja þig sjálfa/n út í ystu æsar og mátt ekki vænta of mikils af fólkinu sem þú elskar. Það er engu líkara en að í þér búi ævarandi eldur sem heldur þér stöðugt vakandi fyrir dásemdum lífsins. Þú þráir frelsið og að lifa óheft/ur.

Áttunda stjörnumerkið þitt er stöðugt vatn og það segir til um ástarhita, styrk sem þú þarft reyndar að stýra vandlega og ekki síður ákveðni þína. Stöðugi hluti þinn veitir þér þrautseigju.

Einnig er þér stjórnað af Plútó en eins og þú veist er hverju merki stjórnað af plánetum og áhrifum hennar og það er sérstaklega skoðað hjá okkur þegar árið framundan er tekið fyrir. Plútó ræður mestu í lífi sporðdrekans þegar sumarið gengur í garð (maílok). Sterk afstaða Plútós til þín eflir dulsæi þitt svokallað en dulræna hliðin þín fær þig til að sjá hulinn tilgang í hverjum harmleik ef svo má að orði komast.

Í byrjun árs blæst þú á rök. Þú átt það til að fara út í öfgar þegar ástin er annars vegar fyrstu þrjá mánuði ársins. Hér er auðlesið að þú hefur hlið, sem kemur fram í febrúar - marslok, sem er áberandi hungruð og sterk. Sú hlið virðist einnig vera áráttugjörn, ráðrík og eigingjörn. Marsfólk er ákveðið en í þessu tilfelli birtist drekinn skynhneigður, flókinn og í dálitlum vandræðum með tilfinningar sínar. Þú hugar árið 2006 að því fyrir hvað þú stendur og hvert hlutverk þitt er í þessu lífi og það er góður kostur því þá ertu að læra og leitast við að þroskast í rétta átt. Þú upplifir þína eðlislægu þrá svokallaða mjög sterkt og hún er dásamleg. Þú horfir á allt með kærleik og hlustar þegar þú ert róleg/ur og í góðu jafnvægi árið framundan. Sérhvert andartak í lífi þínu er verkefni þitt. En sá sem fer ótroðnar slóðir eins og sporðdrekinn á ekki endilega auðvelda daga. Hvort sem þú verður mikill leiðtogi þetta ár eða ekki þá birtist þú einmana. Því þú átt það til að vera á undan þinni samtíð og breytist líka svo ört að aðrir eiga stundum erfitt með að halda í við þig.

Þegar vetur konungur gengur í garð koma fram breytingar á lífsstíl þínum: einhverskonar endurfæðing eða áherslubreytingar sem hefjast innra með þér og þú tileinkar þér með réttu hugarfari. Hjarta þitt leiðir þig í rétta átt. Hér á sér stað vöxtur og góð upplifun.

Nautið (20.apríl - 20.maí) - Ársspá 2006 - Velmegun
- Ráðsnilld
- Góð, öflug orkaHeillaríka áhrifastjarnan Venus eflir nautið árið framundan svo um munar. Þessi stjarna eflir ráðsnilld þína. Þú nærð einfaldlega því sem þú þráir svo góð orka birtist hérna samhliða Venus. Undir kuldalegu og fálátu yfirborði hefur þú nánast heilt vopnabúr til að heilla fólkið sem þú kýst að elska og hlúa að. Þetta er stórmerkilegt því slíkt sést ekki í fari annarra stjörnumerkja árið 2006. Þessi óskiljanlegi kraftur einkennir þig árið framundan. Þú hefur einnig áberandi ríka þörf fyrir að aðrir þarfnist þín.

Íhaldssemi einkennir stjörnu þína á nýju ári. Þú kýst að nota auðlindir jarðar skynsamlega og þú virðist leggja þig fram við að spara peninga því íhaldssemi þín krefst þess að til sé sjóður ef í nauðir rekur.

Hæfileiki þinn til að græða peninga er óþrjótandi árið 2006. Það er eins og loksins líti draumar þínir dagsins ljós. Markmiðin verða að veruleika og þú fagnar í faðmi ástvina þegar laufin falla. Þú kemur auga á gróðaleið þar sem aðrir sjá aðeins örvæntingu. Þú virðist hafa ákveðið að byrja mjög smátt en ef þú ert nógu ákveðin/n getur þú á endanum staðið uppi með stórfyrirtæki.

Þörfin fyrir snertingu er vægast sagt sterk árið 2006 í nautinu. Þú kýst að nota snertiskynið til að tjá tilfinningar þínar í garð annarra. Sé þér neitað um ástúð og þú upplifir höfnun sölnar þú líkt og blóm. Lífsgleði þín minnkar einfaldlega ef ástúðin minnkar í þinn garð, segðu elskunni þinni þetta á auðskilinn máta og þú færð notið þín í faðmlögum og umhyggju.

Meyjan (23.ágúst-22.sept) - Ársspá 2006 - Hreystleiki
- Útsjónarsemi
- VerðmætasköpunMerkúr eflir þig líkamlega fram í október. Lífsþróttur er einkenni stjarnanna sem Merkúr hefur sterk áhrif á og það virðist lýsa þér árið 2006. Góð heilsa, andleg og líkamleg. Þú ert í raun sjálf/ur huglæknir, að því tilskildu að þú beinir orku þinni í réttan farveg - sálrænni, andlegri og líkamlegri. Þú hefur hæfileika til þess. Einnig er komið inn á viðskiptahliðina hjá Merkúr en Merkúrfólk svokallað er slyngt í rekstri og fært um að gera mikið úr nánast engu með mögnuðu hugviti, útsjónarsemi og óbilandi dugnaði.

Þegar vorar opnast nýjar dyr fyrir fólki sem fætt er undir stjörnu meyju og það kemur hvorki dugnaði né vitsmunum við heldur mun það líta í eigin barm og huga betur á því hverju það byggir líf sitt á og hvað veitir því raunverulega gleði. Eins og fyrr segir mun margt skýrast fyrir þér árið framundan ef þú ert borin/n í heiminn undir stjörnu meyju sem stýrt er af Merkúríusi.

Sköpunargleði meyju er einnig áberandi fram í október. Hæsta gleði þín felst í því að skapa og þú gefur ímyndunarafli þínu lausan tauminn (loksins). Þú leyfir hugmyndaflugi þínu að leika lausum hala og einmitt þá ertu fær um að njóta þín að fullu. - Að ekki sé minnst á þegar þú getur lifað af því og skapað verðmæti sem uppfyllir þarfir annarra.

Ástríðublossar þínir gætu komið þér á óvart árið framundan. Hér skortir vissulega ekki neistann þegar tilfinningar meyju eru teknar fyrir. Bestu samböndin fyrir þig eru þau þar sem báðir aðilar vinna við eitthvað sem þeir elska og hittast eftir samkomulagi. Þú gætir viljað hafa nákvæman samning um það hvernig, hvenær og í hvaða tilgangi þú og elskhugi þinn komið saman. Sýndu viðleitni og skilning og þá fer allt eins og þú óskar þér.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst) - Ársspá 2006
- Kröfuharka
- Uppskera
- Álag fram á vorUppskera er lykilorð ljónsins árið 2006. Það uppsker hinsvegar eingöngu og alfarið í samræmi við trú sína. Ljónið sýnir þig leita ljóssins í upphafi árs þar sem þú hefur það eflaust á tilfinningunni að skuggar fyrirfinnist. Skuggarnir eru hluti að þeim leik sem þú tekur þátt í í því skyni að finna sannleikann sem virðist vera takmark þitt miðað við áhrifastjörnu þína, sólina. Sólin eflir mikla hugsuði sem fæddir eru undir stjörnu ljónsins. Hugsuðina sem leggja sig fram við að aðgreina sannleikann í þá veru að kryfja hann eins og þú.

Kröfuharka þín virðist ekki dvína árið framundan heldur þvert á móti mun hún magnast. Þú vilt hafa allt eftir þínu höfði og þó þú vitir ekki alltaf af því þá vilt þú að aðrir sýni blíðuhót sín og vináttu á sama hátt og þú sjálf/ur. En þú ert góður stjórnandi og ættir að virkja hæfileika þína til að leiða góðan hóp af fólki sem þú starfar með eða fyrir en þú þolir ekki smáatriði eða rútínu (mátt huga að því og leggja þig örlítið betur fram við að sýna umburðalyndi í þeim efnum framan af vetri).

Leiðtogi: Þú kannt vel við að stjórna fólki og verkefnum og ert lagin/n við það; en eins og fyrr segir er þér meinilla við að sjá um smáatriðin. Þú ert klár að finna fólkið sem þú getur látið taka að sér öll þau smáatriði sem þú neyðist til að kljást við og vinnur yfirlett best þegar þú hefur lið til að sjá um þau.

Manneskjan sem er þér kær upplifir rausnarlegan félaga að því tilskildu að hún komi fram við þig eins og þú býst við og óskar. Árið 2006 þarft þú sífellt aukaathygli og enn meira þegar þú ert undir álagi sem virðist einkenna þig í febrúar og mars á vinnustað þínum.

Þú finnur að gullna keðja kærleikans er eilíf og veist að þitt hlutverk er ekki að breyta þeim sem þú umgengst heldur leiðbeina og styrkja. Þú býrð yfir innra jafnvægi sem er þinn mesti styrkur og það kemur sér vel því gildin breytast hratt hjá þér árið framundan.

Vertu viðbúin/n velgengni á ógnarhraða.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí) - Ársspá 2006 - Tilfinngagáttir opnast
- Upptekin/n af undirstöðum lífsins
- Hættir að vanmeta eigin tilfinningarÞað er ástæða til að fjalla örlítið um tunglið áður en árið framundan er skoðað hjá stjörnu krabbans því það hefur áhrif á tilfinningar þínar og viðbrögð þín gagnvart umhverfinu. Tunglið er örlagastjarna þín og það virðist stundum koma þér úr jafnvægi ef þú hugar ekki vel að heilsu þinni og innra jafnvægi. Árið framundan ertu tengd/ur tunglinu. Í Biblíunni er til dæmis tunglinu líkt við tré lífsins. Krabbinn er í raun lífsins tré og forðabúr annarra á líkamlega sviðinu ef við notumst við myndlíkingar hérna. Þú ert upptekin/n af því sem skiptir mestu máli: húsaskjóli, mat, æxlun.

Tilfinningalíf þitt verður kröftugra en þú átt von á árið 2006 og þá kröftugra en vitsmunalegar og röklegar hvatir. Hugaðu vel að þessu og leyfðu þér að virkja þig á tilfinningasviðinu með því að opna þig betur og segja hvað býr í brjósti þínu í raun og veru. Leyfðu þér fyrir alla muni að vera rómantísk/ur og ástríðufull/ur í garð elskhuga þíns. Þú átt það til að vanmeta tilfinningar þínar og það sem sálin segir þér nánast daglega.

Þú, sem ert svo gefandi, átt það til að halda aftur af þér og hefur gert það síðasta árið (2005) og nú er komið að því að þú hættir að vernda þig tilfinningalega. Með tímanum getur sjálfsvernd þín orðið að skel sem hindrar aðgengi og útflæði.

Þótt öllum öðrum virðist þú vera sjálfsörugg/ur þá ert þú vís að festast í sama hræðilega farinu sem aðeins þú og maki þinn eða ástvinur þekkja. Breyttu því meðvitað því tilfinningagáttir þínar opnast á nýju ári.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl) - Ársspá 2006 - Ástríða
- Hluttekningarleysi
- ÓnærgætniÞú tilheyrir Marsfólki sem segir að Mars er áhrifastjarna þín árið 2006. Umtöluð stjarna sýnir þér leiðast í byrjun árs en sem maki og félagi ert þú flókin/n, kröfuhörð/-harður og ástríðufull/ur. Fyrstu þrjá mánuði ársins áttar þú þig á því að það er nauðsynlegt fyrir þig að læra að næra sjálfa/n þig og aðra á dýpsta sviði tilfinninga þinna en gleymir að sýna nærgætni ef þú finnur fyrir þrýstingi úr umhverfi þínu.Þú kýst að upplifa virðingu, næmni og jafnrétti og árið framundan heillar þú nánast hvern sem verður á vegi þínum sökum vellíðunar og góðu jafnvægi. Ástin blómstrar og þú ert ástfangin/n og elskar af öllum mætti. Þú virðist taka lífsgildi þín til algerrar endurskoðunar, hlustar betur og þar af leiðandi nærðu ásættanlegum árangri bæði faglega og tilfinningalega. Árið er þitt.Þú viðurkennir og afhjúpar m.a.s. viljug/ur bældan veikleika þinn en til að verða sterk/ur þarft þú að viðurkenna eiginleika þína. Með hægðinni þarft þú að horfa inn á við og sjá það sem eflir þig og stýrir orku þinni og krafti.

Orkan og sálin þín
Af því að minnst er að að þú stýrir orku þinni árið framundan er fróðlegt fyrir þig að vita eilítið um sál þína og hvaðan hún kemur ef þú ert opin/n fyrir því á þessum tímapunkti í lífi þínu. Þegar vitund þín svokölluð tjáir sig skiptist hún hvað eftir annað. Þegar hún hefur skipst að því marki að meiri þroska eða meðvitund er ekki að finna þá leitar hún sameiningar og þá fæðist ein ný sál.

Þú ert fær um að gera þér ljóst að guðdómleikinn er innra með þér og allt í kringum þig. Lærðu meðvitað árið framundan að upplifa hann.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars) - Ársspá 2006 - Fullur af töfrum og hrekkjum
- Móttækilegur
- AuðsæranlegurRáðvilltur birtist fiskurinn í byrjun ársins. Hér er minnst á breytilegt sálarástand sem þú leitast við að stjórna á uppbyggilegan hátt. Þegar líður að byrjun mars mánaðar nærðu að komast yfir eðlislæga löngun þína sem er að fórna sér stöðugt fyrir aðra. Þú gerir þér að sama skapi ljósa þá ánægju sem fólgin er í óeigingjörnu starfi en þó án þess að ganga á eigin hlut.Þér er líkt við Dóróþeu í Galdrakarlinum frá Oz: Full/ur af hrekkjum og töfrum. Veröld þín er nefnilega full af tilfinningalegum stormsveipum. En þú munt hafa fulla stjórn þegar sumarið hefst og verður sérstaklega móttækileg/ur og nærð að virkja dulræna krafta þína. Þú ert einstaklega góð/ur í samskiptum án orða allt árið framundan (dulrænn og öflugur kostur í fari þínu sem þú mættir nýta alfarið til hjálpar öðrum) en þar af leiðandi ræðir þú allt of sjaldan tilfinningar þínar sem skipta ekki síður máli. En þar sem þú ert að slíta þig árið 2006 frá óheilnæmum hlutum í fortíð þinni, þarft þú að leggja áherslu á að tjá þig með orðum í meira mæli. Þú getur komist hjá erfiðleikatímum (febrúar) á tilfinningasviðinu með því að leyfa ástvinum að deila með þér í meira mæli og ræða málin.Stundum þarf maður að taka á honum stóra sínum ef maður er með opið hjarta eins og þú. Þá er mikilvægt að leyfa sér ekki að fá samviskubit þó öðrum líði illa yfir eigin vandræðum. Þú getur ekki bjargað heiminum.

Hættu að leyfa aðstæðum að draga úr þér máttinn, bæði í einkalífi og starfi. Þú mættir efla sjálfið frá og með deginum í dag með því að leggja þig fram við að verjast með því að draga þig svolítið útúr hringiðunni, taka hæfilega þátt í lífi annarra, auðsýna þörfum annarra samúð og hluttekningu en án þess að gleyma þínum eigin þörfum.

Ef einhver af stjörnunum skilur heildina þá ert það þú. Þú veist að það er oftar en ekki erfitt að læra í jarðneskum skóla og að allt hefur tilgang. Á hverri stundu getur hjartað lokist upp og nú, árið framundan, er komið að þér að hlusta á hjarta þitt og gerast áhrifavaldur í lífi þínu.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars) - Ársspá 2006 - Fullur af töfrum og hrekkjum
- Móttækilegur
- AuðsæranlegurRáðvilltur birtist fiskurinn í byrjun ársins. Hér er minnst á breytilegt sálarástand sem þú leitast við að stjórna á uppbyggilegan hátt. Þegar líður að byrjun mars mánaðar nærðu að komast yfir eðlislæga löngun þína sem er að fórna sér stöðugt fyrir aðra. Þú gerir þér að sama skapi ljósa þá ánægju sem fólgin er í óeigingjörnu starfi en þó án þess að ganga á eigin hlut.Þér er líkt við Dóróþeu í Galdrakarlinum frá Oz: Full/ur af hrekkjum og töfrum. Veröld þín er nefnilega full af tilfinningalegum stormsveipum. En þú munt hafa fulla stjórn þegar sumarið hefst og verður sérstaklega móttækileg/ur og nærð að virkja dulræna krafta þína. Þú ert einstaklega góð/ur í samskiptum án orða allt árið framundan (dulrænn og öflugur kostur í fari þínu sem þú mættir nýta alfarið til hjálpar öðrum) en þar af leiðandi ræðir þú allt of sjaldan tilfinningar þínar sem skipta ekki síður máli. En þar sem þú ert að slíta þig árið 2006 frá óheilnæmum hlutum í fortíð þinni, þarft þú að leggja áherslu á að tjá þig með orðum í meira mæli. Þú getur komist hjá erfiðleikatímum (febrúar) á tilfinningasviðinu með því að leyfa ástvinum að deila með þér í meira mæli og ræða málin.Stundum þarf maður að taka á honum stóra sínum ef maður er með opið hjarta eins og þú. Þá er mikilvægt að leyfa sér ekki að fá samviskubit þó öðrum líði illa yfir eigin vandræðum. Þú getur ekki bjargað heiminum.

Hættu að leyfa aðstæðum að draga úr þér máttinn, bæði í einkalífi og starfi. Þú mættir efla sjálfið frá og með deginum í dag með því að leggja þig fram við að verjast með því að draga þig svolítið útúr hringiðunni, taka hæfilega þátt í lífi annarra, auðsýna þörfum annarra samúð og hluttekningu en án þess að gleyma þínum eigin þörfum.

Ef einhver af stjörnunum skilur heildina þá ert það þú. Þú veist að það er oftar en ekki erfitt að læra í jarðneskum skóla og að allt hefur tilgang. Á hverri stundu getur hjartað lokist upp og nú, árið framundan, er komið að þér að hlusta á hjarta þitt og gerast áhrifavaldur í lífi þínu.

Vogin (23.sept-23.okt) - Ársspá 2006 - Fegrunarverkefni
- Verknaður breytir ýmsu
- Gott skap & háttvís

Áður en þú lest ársspána þína langar mig aðeins og koma inn á neikvæða orku. Þótt neikvæð orka virðist ekki renna sömu slóð og náttúrulögmál kærleikans er hún samt til staðar í efnisheiminum sem við lifum í. Þú hefur eflaust leitt hugann að þessu síðasta ár ef marka má vogina hér. Án þessarar umtöluðu orku gætum við ekki valið á milli myrkurs og sólar, er það?

Þú ert ein/n af þeim sem velur ávallt ljósið, kærleikann og sannleikann og það er einstakur og fagur eiginleiki í fari þínu. Þú leitar ljóssins og skuggarnir sem verða á vegi þínum hafa alls engin áhrif á þig. Þú treystir á þá leiðsögn sem þú færð, en skilur hana ekki endilega alltaf en þú veist hinsvegar innra með þér að þú verður að sannreyna hana og hlusta af alhug á undirmeðvitund þína. Hlustaðu á það sem sagt er og leyfðu hjarta þínu og þinni innri visku, innsæinu, alltaf að hafa úrslitavaldið.

Ekki taka við því sem þér finnst ekki rétt. Sú ábyrgð verður aldrei frá þér tekin. Treystu þeim hluta árið framundan.

Snúum okkur nú að ársspánni þinni:

Örlagastjarna þín Venus hefur áhrif á þig sem og stjörnu nautsins árið 2006 og hún segir að þú, sjöunda merkið í dýrahringnum, öðlast geysilega reynslu í samskiptum þínum fram að vetrartíð.

Verknaður sem þú tekst á við árið 2006 leiðir til vaxtar hjá þér og hann opnar þér leið til að finna þinn eigin tilgang, þínar eigin þarfir og þinn eigin sannleika. Umtalaður verknaður er gjöf frá umhverfinu til þín. Þú tengist listum, hugvísindum, fegrunarverkefnum því áhugi þinn á ásýndum hluta er geysilegur. Skreytingar og breytingar eiga vel við þig.

Háttvísi þín er tekin fyrir fyrri hluta ársins. Þú ert fullnuma í háttvísi og notar hana vel árið 2006. Margar þeirra aðferða sem þú lærðir í bernsku koma þér vel. Þú hefur skilining og samúð og stillir skapofsa þinn á aðdáunarverðan máta. Vinir þínir meta að verðleikum töfra þína og gott skap og fyrirgefa þér eflaust skyndilega árásargirni sem á það til að ‘poppa’ upp endrum og eins og þá sér í lagi þegar álag einkennir þig en það gerist ekki oft árið framundan því þér líður vel og ástin umlykur þig. Líf þitt færist með hverjum deginum til betri vegar.

Bogmaður (22.nóv-21.des) - Ársspá 2006

- Hulunni svipt af og þú opnar hugann
- Allt lýtur lögmálum í lífi þínu
- Þroskast í rétta átt

Þú skalt ekki trúa því eitt andartak að þú hafir fæðst fyrir tilviljun. Allt lýtur reglu og með tímanum verður það ljóst fyrir þér. Þú tekur stórt skref í þroska þínum árið 2006 því það er eins og einhverskonar hulu verði svipt af þér fyrstu þrjá mánuði ársins. Henni (umtöluð hula) verður svipt frá og vitund þín þenst út og þú sérð lífið í heild sinni, í öðru ljósi. Þú áttar þig á þeirri staðreynd þegar vorar að þú berð veldissprota takmarkalauss máttar.

Ástæðan fyrir því að ársspáin þín hefst svona er því undanfarið ár virðist stjarna bogmanns hafa haft tilhneigingu til að missa sjónar af tilgangi lífsins (getur verið lítilsháttar en það hefur komið fyrir oftar en einu sinni).

Júpíter hefur áhrif á þig þannig að þú iðar af lífi til líkama og sálar. Dýrsleg orka þín eflist og þú leggur í ferðalag af skyndilegri hugdettu fyrir vetrarkomu. En þú ert ekki bara ferðalangur með brennandi áhuga á lífinu heldur ertu stálminnug/ur á staðreyndir. Þú virðist átta þig á því veturinn framundan að ferðalög geta víkkað út meðvitund þína og þannig hjálpað þér að setja þér mark í lífinu. Of oft verða umtöluð ferðalög, þunn afsökunarblæja af þinni hálfu til að vísa ábyrgð og/eða leiðindum á dyr.